| .:Birnan... |
| your description here |
|
fimmtudagur, febrúar 24, 2005
JÆJA!!! Ætli það sé komin tími á að segja hingað og ekki lengra, ég bara nenni þessu ekki lengur!! Pretty obvious right;) Vinnan og pælingar með vinnuna, milli þess sem ég reyni að læra og mæta í tíma er að taka mestan tíma minn þessa dagana... rest fær dóttirin, og þegar því er lokið er heimilið og dýrin eftir... Get ekki kvartað, finnst þetta dásamlegt:) Svo er ég náttla að telja niður í ágúst... þegar litla systurbarnið fæðist... búnað sjá NIKE skó, FULLT af fötum og dúllerí handa svona ogguponsulitlum einstaklingum. Hafið það gott LOVEBIRDS
sunnudagur, febrúar 13, 2005
Átti eina af mínum verri nóttum síðast liðnu nótt... dreymdi að dóttir mín væri látin, og lá hún þarna enn í náttfötunum sínum skjannahvít og ég við hlið hennar að syrgja hana. Ég gat hvorki skilið hvernig ég gæti haldið áfram án hennar, eða hvort möguleiki væri á framhaldi eftir þetta. Ég áttaði mig á því seint og síðar meir hvers vegna ég var svona viðkvæm í dag, táraðist og grét yfir hverju einasta atriði í mynd sem ég var að horfa á... að ástæðurnar væru nóttin. Ég þakka fyrir það að barnið mitt er heilt heilsu og glatt hjá pabba sínum. Ég hlakka ferlega til að vefja hana örmum og knúsa hana vel og lengi á mánudag. Hugga mig líka við það að það boði gott að dreyma dauða einhvers nákomins... vona að það boði henni farsæld! Svo veit ég ekki hvernig mér á að líða með það að pabbi fer í aðgerð á mánudagsmorgun. Heyrðist á honum að hann væri hæstánægður með að það væri komið að þessu. Og þetta er hugsanlega byrjun á nýju og betra tímabili ef allt gengur vel, sem ég auðvitað vona að geri. Ég er svo komin í nýtt, krefjandi og spennandi starf með skólanum. Verður oggulítið barn sem ég fæ að hjálpa til við að skapa. Ég er að venjast álaginu, sem ég er ekki vön.. en mér líður óneitanlega vel í vinnunni. Svo hef ég svo margt að segja... en stundum er best að halda hlutunum fyrir sig og fáein eyru til viðbótar. Ótrúlegt en satt...
laugardagur, febrúar 05, 2005
Ekki er ég horfin alveg;) Það helsta sem er að gerast er: NÍNA SYS ER PREGNANT!!!!!!!!! shiiiiiiiit hvað er gott að losna við þetta úr systeminu! Hún er komin með netta bumbu og bumban lofar skemmtilegu frænsystkini... Ég er búnað knúsa bumbubúan í bak og fyrir í hýbýlum sínum auðvitað... þetta verður schnilldar ormur... það er ég viss um! Að öðru leiti er nóg að gerast... fékk frábæra heimsókn... lágum í kaffidrykkju og rauðvíni... og á morgun eru Guðný og Stebbi Stuð væntanleg... Stebbi stuð og Vigs eru jafnaldrar því á ég von á brjáluðu stuði hér á bæ. OOOOOOOOOOOooooooog já. Held ég láti rauðvínið líða úr mér!
|
About Me Birna... Mamma, nemi, 25 ára
The Old
kemur seinna home
Bloggin
HNoHNo Sys Grettir anna.is madmomo majae beta gudjon.net Jacque kjarri sola sase frostros Una buna Talia
Xcellent Linkar
IllWill ir.is meynleysi Basenji sogur-ljod
Credits
design by maystar powered by blogger |