| .:Birnan... |
| your description here |
|
þriðjudagur, janúar 18, 2005
Sofanði í sófanum í kvöld... og nú get ég ekki sofnað, alltof mikið í gangi í hausnum á mér. -Hvað skuli versla í matinn á morgun -Vanti handsápu -klósettpappírinn sé að verða búinn -ég hafi ekki gert kaffikönnuna tilbúna -ég hefði átt að þvo á mér hárið Svo er ég í myndavéla dilemmu... og kostnaður á tölvuviðgerð kostaði yfirlið... og og og og ... mig vantar kúr.. en það væri samt svo mikið waste of space, þannig að það borgar sig ekki. Svo segir Nína sis að ´74 árgerð sé líka too old... þannig að hugsum ei lengur um það;)Kannski myndi eitt símtal í ´74 laga það en... Súrmjólk hugsar um karlmannsþarfir mínar, hann skýlir mér í leigubílaröðinni... nöldrar þegar hann er orðin of drukkinn, og borðar það sem ég baka... OG hann tekur samt ekki óþarfa rúmpláss eða skylur eftir blauta bletti í lakinu, spáið í því!!!
sunnudagur, janúar 16, 2005
Var tilkynnt í kvöld að ég væri kvendi með stálgrímu... ég veit ekki hversu sátt ég er við þetta, finnst ég almennt séð voðalega ljúf og góð við þá sem ég kæri mig um að vera ljúf og góð við! Allavega hljómaði þetta á við að ég væri með yfirborð á við sweet... svo kæmi stálið og normið væri undir, en engin fengi aðgang að. Hvað segir maður við svona? Getur maður annað en brosað sætt og verið krúttlegur? Hitti annars mikið af skemmtilegu fólki í kveld, sat á tímabili milli tveggja fyrrverandi bólfélaga síðan í den sem var virkilega wierd! Annar þeirra reyndi við mig á ný en ég djammaði með konu hins allt kveldið. Efast um að hún viti um history okkar, þar sem fáir vita af henni yfirleitt;) Var sérlega súrealískt móment. Gaf svo afmælisbarninu tvo svía í afmælisgjöf sem ég fann á hressó, þeir voru litlir og krúttlegir, báðir brúneygir sem er skilyrði afmælisbarnsins, hún afturámóti sá það ekki!! Fannst þeir full ljóshærðir og yfirgaf þá... henni var nær, ég færði henni tvö eintök af brúneygðum karlmennum! Svo þú ákveðna persóna sem lest þetta blogg sem skyldir ekki hintin, ég vildi losna við þetta síblaðrandi nörd... áttir að losa mig við það ekki hlæja... I´ll get you for this!
laugardagur, janúar 15, 2005
Skrítin tilfinning að vera að hætta að reykja... þó það séu rétt komnir að mínu mati, nokkrir klukkutímar, vildi óska að það væru komnir 9 mánuðir!! Mætti sætum strák að reykja í dag, labbaði xtra nálægt, ekki til að skoða hann betur, nei til að finna góðu lyktina sem var svo ekkert góð! Eina sem ég fann var að ég þurfti að fara að kúka fljótlega, sorglegt frekar! Svo er mér illt í rassinum, var brókuð af viðhöldunum, þau unnu saman að þessu, annað hélt mér meðan hitt brókaði, ósanngjarnt hvað? Og svo var mér hótað skilnaði! Pffttt.... Ekki sátt! Annars er pabbi í ágætu skapi þessa dagana, er ekkert að stressa sig of mikið yfir þessu allavega miðað við móðursjúku kellingarnar fjórar sem eru að plana matseðilinn fyrir hann, ALLT HEALTHY!! Og ég er búnað segja honum að ég sjái um að snyrta kjetið í kjötsúpuna... þar sem ég er sérfræðingur í að losa kjöt við alla óæskilega fitu, fékk ekkert nema dauðasvip til baka!! Held samt að pabbi hafi nett gaman að allri þessari athygli, fyrir utan að hann er að missa af öllu fótboltanum, og er verulega svekktur yfir að fá ekki að fara heim, allavega yfir helgi. En hann fékk lista yfir hvað hann má EKKI gera... það inniheldur alla leiðinlega hluti, ryksuga, slá garðinn (halló það er vetur) þvo bílana (hann gaf mér það verkefni, ég á að fara í sigtún sagði hann vegna kuldans-glaða ég;) ef hann setur í þvottavél, þá verður að hann að gera það hægt og taka hvíldir á milli... held að engin láti hann gera það hvort sem er;) Ég sagði honum að arfleiða Óskar bara að húsbóndatitlinum og láta hann gera leiðinlegu hlutina... hann hefði gift sig inní familýjið... nú væri tíminn til að taka ábyrgðina... látum hann ryksuga! ....Grunar reyndar að hann sé meiri húsmóðir en systir mín, ásamt því að geta gert við bíla og mótórhjól... hef engar áhyggjur að hann myndi ekki sóma sér vel sem höfuð fjölskyldunnar:Þ
fimmtudagur, janúar 13, 2005
Fór og spjallaði við starfsmenn nýja leikskóla vigs í dag, lýst bara ótrúlega vel á þetta allt saman.Eins og þetta er búið að valda mér vissum áhyggjum þá held ég að þetta verði góð breyting, íþróttasalurinn t.d. er á stærði við heilt hús :P Og var því farið að versla tilheyrandi íþróttafatnað sem þarf víst að vera til staðar... daman fékk adidas outfitt, bleikt auðvitað... Mér tókst xcually að finna eitthvað á þúsara, adidas sjáiði til, þúsara... er ég ein um að vera svona surprised??? Annars fór pabba mín í hjartaþræðingu í dag sem gekk ágætlega, og er hjáveituaðgerð (bypass)næst á dagskránni. Get ekki sagt að ég sé annað en ein stór kvíðahrúga, reyni þó að komast hjá því að láta mömmu finna fyrir því... þó að hún óneitanlega finni það við fyrsta tón.. hvað er þetta með mömmur og there sixth sence? Ég kemst samt ekki hjá því að sjá það í augunum á mömmu hvað hún er hrædd, ég þakka bara fyrir hvað ég var ung þegar afi fór í þessa aðgerð að ég skyldi ekki almennilega hversu alvarlegt þetta var. Núna vil ég helst flytja uppá Lansa og sofa í stólnum hjá pabba... Skapið er heldur ekki að gera sig fyrir mig, og finnur vigs helst fyrir því, hún var samt mest hissa yfir öllum þessum snúrum og risaplástrinum á fætinum á pabba... en var samt greinilega að reyna hughreysta pabba með því að segja honum hvað þetta allt væri voða flott í dag, snúrurnar og bindin sem halda öllu á sínum stað. Svo klappaði hún honum reglulega og strauk og kyssti hann vel og vandlega... þau eru ekki eins útúr heiminum þessi börn eins og maður heldur stundum. Kannski er hún bara sterkust af okkur öllum á þessum tímapunkti, því hún stappaði duglega í mig kjarkinum þegar við löbbuðum út með því að kyssa á hendina á mér og segja mér að ég væri best og að hún elskaði mig. Annars er ég að hætta að reykja, föður mínum til stuðnings, og sjálfri mér auðvitað svona til framtíðarlitið. Samt væri gott að fá sér smók núna!
þriðjudagur, janúar 11, 2005
Það er tvennt sem ég hef alltaf vitað, síðan ég var pínulítil. Það var að ef varnarturnar mínir féllu, myndi ég falla með þeim. Ég hef aldrei trúað að ég myndi standast það að sjá á eftir öðrum þeirra. Hitt er að ég get ekki fúnkerað án fjölskyldunnar. Fjölskyldan stendur enn að mestu stöðug, með sveiflum af og til, en annar varnaturninn minn veiktist í dag. Hann liggur á spítala, í óþægilegu spítalarúmi og það eina sem ég get hugsað um núna er að mig langar að komast þangað til að leggjast uppí til hans að knúsa hann og fá að heyra einu sinni til viðbótar hann spyrja hver eigi mig... Veröldin hrynur þegar annað foreldrið veikist alvarlega, manni sortnar fyrir augum og þó maður telji sig geta staðist allt, er maður ekkert nema veikburða einstaklingur í alltof grimmu umhverfi. Ég hélt ég þyrfti ekki að upplifa þessa tilfinningu fyrr en pabbi yrði minnst áttræður. Minningar af pabba hrúgast inn, pabbi að knúsa mig með bíddamannabóarann, næturtásunuddið, pabbi að bjarga barbiehestunum mínum, grafa út flísar úr fingrunum, leyfa mér að hjálpa að mála bílskúrinn þó ég hafi málað sjálfa mig meira en veggina, færa mér fyrstu verkfæratöskuna, kenna mér að mæla olíuna á bílnum og að skipta um dekk. Ég treysti á að pabbi minn verði komin heim á morgun, óhultur, hjá mömmu og ég geti knúsað hann og sagt honum hversu mikið hann skipti mig máli. Hringiði í pabba ykkar og segiði þeim það!
Dagur 3 skólinn var búinn kl. 10:30 þar sem kennarinn sem kenndi til 16 var veikur... frábær dagur hA? minn dagur byrjaði í raun ekki þar sem ég var að passa mig svo mikið að sofna snemma og hugsaði of mikið að vera búnað gera allt ready áður en ég færi að sofa og sofna snemma að ég gleymdi að stilla klukkuna... en allt annað var sko ÞOKKALEGA tilbúið!! Ég mætti þessvegna í skólann til þess að fara bara aftur heim;) með smá kringlustoppi með Elínus og Guðrúnu úr skúlen! Svo er það Amazing Race í kvöld PPL... Iceland baby... Iceland;)
mánudagur, janúar 10, 2005
oh LaLibra, make me blind so that I can see everyone's dreamin' of a truth to be everyone's changin' channels on a big tv oh LaLibra, like a balance time tried to hold her, tried to tie her down but I beat the clock, now the balance makes my world go round, oh LaLibra, like a balance LaLibra, my love LaLibra, my love...
Maðurdagsins í dag er INGÞÓR!!!!! Ójá.. því hann lánaði Birnunni sinni tölvu svo hann gæti nöldrað í henni online sem offline;) Nei annars..það er ljótt að ljúga svona... Ef ég á að segja ykkur eins og er.. þá vissi ég að ég myndi ekki þola við of lengi og lagðist í snjóinn fyrir utan hjá honum í snjóhríð og ískulda... í hvítum bómullabol og engum brjóstahaldara og hágrét þar til hann lofaði að lána mér tölv, enda lá hann yfir henni dag og nótt þar til hún var óaðfinnanleg... tárin mín koma mér allt:) Nema til Hawaii, þetta fólk á ferðaskrifstofunum er ekkert smá harðbrjósta! Birna er búnað koma prentarnum í gagnið og er hæstánægð hérna með virkan ofurhljóðan prentara og nettengda tölvu *JahÚ* Svo lenti Birna í ævintýrum um helgina... jájá... Ævintýrin innihéldu Bollu í Breiðholti, sætan strák sem fór þegar hann sá mig tala við Ingþór, Hot shots með steinu og Ingþórnum og STÓRA pizzu ... hún var góð vinkona mín í hádeginu í dag!! Annars hefur sæti strákurinn greinilega verið eitthvað gallaður... pottþétt, annars hefði hann ekkert látið Ingþór hræða sig.. Ingþór er nú EKKI svo scary!! Svo var verið að segja mér að ég sé egóisti... ég er ekki egóisti, hvað eruði að meina með að ég sé egóisti, ég er ekki egóisti. Ég er meðvituð! Annars fékk ég stærstu köku sem ég hef séð í gær... fjögra hæða súkkulaðikaka a la Óskarius mágur... ofurbakari HVAÐ???????
föstudagur, janúar 07, 2005
Tútúdídarídei Tölvið er komið í alhliðaviðgerð, svo Birna verður tölvulaus til further notice... En þegar hún kemur heim í hlýjuna verður hún komin með nýtt lyklaborð, vonandi lagað usb tengi og búnað fara í yfirhalningu... og mun eiga enn meira broke mömmu!! Annars er mér eiginlega bara kalt 24/7 jólaspikið er engan veginn að gera sitt gagn.. á þetta drasl ekki að halda á manni hita? Eiginlega eina ástæða þess að ég er ekkert að ergja mig beint á jólaspikinu er að það á að sjá til þess að mér verði ekki kalt, en ef það sinnir ekki sínum skyldum, getur það bara farið eitthvað annað. Nenni nú ekki að hýsa svona bjálfa sem sinna ekki svo starfi sínu. Svo er ég reyndar búin með kurlsmákökurnar, svo þá er ekki eitt sætakyns eftir í íbúðinni. Það er til tyggjó, grænmeti og eggjanúðlur. Kókosmjólk, sataysósa og masamankarrý... Tom yumm yumm og Hoisinpingaling... Kínverskir réttir eru málið
miðvikudagur, janúar 05, 2005
Tammdaramm** Stundarskráin í hús... ég er LANGT því frá eins ánægð og í fyrra!!Og þá er ég að meina LAANGT því frá *pffffffft* Í stað þess að danskan sem ég er löööngubúin með og takk fyrir ætla ekki að taka aftur hangi í rassinum þá er mættur áfangi sem ég kláraði fyrir NOTABENE 9 árum síðan, hjá frk Sigríði Candy, er ekki spennt að endurtaka hann hjá Prófessor Vandráði. Ég læt heyra í mér á morgun... *hnuss*
sunnudagur, janúar 02, 2005
Það eina sem hægt er að segja að sinni er að ég er komin með Jólabumbu, þetta er aldeilis fín jólabumba líka:) Gleðilegt nýtt ár *kossOGknús*
|
About Me Birna... Mamma, nemi, 25 ára
The Old
kemur seinna home
Bloggin
HNoHNo Sys Grettir anna.is madmomo majae beta gudjon.net Jacque kjarri sola sase frostros Una buna Talia
Xcellent Linkar
IllWill ir.is meynleysi Basenji sogur-ljod
Credits
design by maystar powered by blogger |