.:Birnan...
your description here
fimmtudagur, febrúar 24, 2005

JÆJA!!!

Ætli það sé komin tími á að segja hingað og ekki lengra, ég bara nenni þessu ekki lengur!! Pretty obvious right;)
Vinnan og pælingar með vinnuna, milli þess sem ég reyni að læra og mæta í tíma er að taka mestan tíma minn þessa dagana... rest fær dóttirin, og þegar því er lokið er heimilið og dýrin eftir... Get ekki kvartað, finnst þetta dásamlegt:)

Svo er ég náttla að telja niður í ágúst... þegar litla systurbarnið fæðist... búnað sjá NIKE skó, FULLT af fötum og dúllerí handa svona ogguponsulitlum einstaklingum.

Hafið það gott LOVEBIRDS

sunnudagur, febrúar 13, 2005

Átti eina af mínum verri nóttum síðast liðnu nótt... dreymdi að dóttir mín væri látin, og lá hún þarna enn í náttfötunum sínum skjannahvít og ég við hlið hennar að syrgja hana. Ég gat hvorki skilið hvernig ég gæti haldið áfram án hennar, eða hvort möguleiki væri á framhaldi eftir þetta. Ég áttaði mig á því seint og síðar meir hvers vegna ég var svona viðkvæm í dag, táraðist og grét yfir hverju einasta atriði í mynd sem ég var að horfa á... að ástæðurnar væru nóttin.
Ég þakka fyrir það að barnið mitt er heilt heilsu og glatt hjá pabba sínum. Ég hlakka ferlega til að vefja hana örmum og knúsa hana vel og lengi á mánudag.
Hugga mig líka við það að það boði gott að dreyma dauða einhvers nákomins... vona að það boði henni farsæld!
Svo veit ég ekki hvernig mér á að líða með það að pabbi fer í aðgerð á mánudagsmorgun. Heyrðist á honum að hann væri hæstánægður með að það væri komið að þessu. Og þetta er hugsanlega byrjun á nýju og betra tímabili ef allt gengur vel, sem ég auðvitað vona að geri.
Ég er svo komin í nýtt, krefjandi og spennandi starf með skólanum. Verður oggulítið barn sem ég fæ að hjálpa til við að skapa. Ég er að venjast álaginu, sem ég er ekki vön.. en mér líður óneitanlega vel í vinnunni.

Svo hef ég svo margt að segja... en stundum er best að halda hlutunum fyrir sig og fáein eyru til viðbótar. Ótrúlegt en satt...

laugardagur, febrúar 05, 2005

Ekki er ég horfin alveg;)

Það helsta sem er að gerast er:

NÍNA SYS ER PREGNANT!!!!!!!!! shiiiiiiiit hvað er gott að losna við þetta úr systeminu! Hún er komin með netta bumbu og bumban lofar skemmtilegu frænsystkini... Ég er búnað knúsa bumbubúan í bak og fyrir í hýbýlum sínum auðvitað... þetta verður schnilldar ormur... það er ég viss um!

Að öðru leiti er nóg að gerast... fékk frábæra heimsókn... lágum í kaffidrykkju og rauðvíni... og á morgun eru Guðný og Stebbi Stuð væntanleg... Stebbi stuð og Vigs eru jafnaldrar því á ég von á brjáluðu stuði hér á bæ.

OOOOOOOOOOOooooooog já.

Held ég láti rauðvínið líða úr mér!

þriðjudagur, janúar 18, 2005

Sofanði í sófanum í kvöld... og nú get ég ekki sofnað, alltof mikið í gangi í hausnum á mér.
-Hvað skuli versla í matinn á morgun
-Vanti handsápu
-klósettpappírinn sé að verða búinn
-ég hafi ekki gert kaffikönnuna tilbúna
-ég hefði átt að þvo á mér hárið

Svo er ég í myndavéla dilemmu... og kostnaður á tölvuviðgerð kostaði yfirlið... og og og og ... mig vantar kúr.. en það væri samt svo mikið waste of space, þannig að það borgar sig ekki. Svo segir Nína sis að ´74 árgerð sé líka too old... þannig að hugsum ei lengur um það;)Kannski myndi eitt símtal í ´74 laga það en...
Súrmjólk hugsar um karlmannsþarfir mínar, hann skýlir mér í leigubílaröðinni... nöldrar þegar hann er orðin of drukkinn, og borðar það sem ég baka... OG hann tekur samt ekki óþarfa rúmpláss eða skylur eftir blauta bletti í lakinu, spáið í því!!!

sunnudagur, janúar 16, 2005

Var tilkynnt í kvöld að ég væri kvendi með stálgrímu... ég veit ekki hversu sátt ég er við þetta, finnst ég almennt séð voðalega ljúf og góð við þá sem ég kæri mig um að vera ljúf og góð við! Allavega hljómaði þetta á við að ég væri með yfirborð á við sweet... svo kæmi stálið og normið væri undir, en engin fengi aðgang að. Hvað segir maður við svona? Getur maður annað en brosað sætt og verið krúttlegur?
Hitti annars mikið af skemmtilegu fólki í kveld, sat á tímabili milli tveggja fyrrverandi bólfélaga síðan í den sem var virkilega wierd! Annar þeirra reyndi við mig á ný en ég djammaði með konu hins allt kveldið. Efast um að hún viti um history okkar, þar sem fáir vita af henni yfirleitt;) Var sérlega súrealískt móment.
Gaf svo afmælisbarninu tvo svía í afmælisgjöf sem ég fann á hressó, þeir voru litlir og krúttlegir, báðir brúneygir sem er skilyrði afmælisbarnsins, hún afturámóti sá það ekki!! Fannst þeir full ljóshærðir og yfirgaf þá... henni var nær, ég færði henni tvö eintök af brúneygðum karlmennum!
Svo þú ákveðna persóna sem lest þetta blogg sem skyldir ekki hintin, ég vildi losna við þetta síblaðrandi nörd... áttir að losa mig við það ekki hlæja... I´ll get you for this!

laugardagur, janúar 15, 2005

Skrítin tilfinning að vera að hætta að reykja... þó það séu rétt komnir að mínu mati, nokkrir klukkutímar, vildi óska að það væru komnir 9 mánuðir!!
Mætti sætum strák að reykja í dag, labbaði xtra nálægt, ekki til að skoða hann betur, nei til að finna góðu lyktina sem var svo ekkert góð! Eina sem ég fann var að ég þurfti að fara að kúka fljótlega, sorglegt frekar!

Svo er mér illt í rassinum, var brókuð af viðhöldunum, þau unnu saman að þessu, annað hélt mér meðan hitt brókaði, ósanngjarnt hvað? Og svo var mér hótað skilnaði! Pffttt.... Ekki sátt!

Annars er pabbi í ágætu skapi þessa dagana, er ekkert að stressa sig of mikið yfir þessu allavega miðað við móðursjúku kellingarnar fjórar sem eru að plana matseðilinn fyrir hann, ALLT HEALTHY!! Og ég er búnað segja honum að ég sjái um að snyrta kjetið í kjötsúpuna... þar sem ég er sérfræðingur í að losa kjöt við alla óæskilega fitu, fékk ekkert nema dauðasvip til baka!! Held samt að pabbi hafi nett gaman að allri þessari athygli, fyrir utan að hann er að missa af öllu fótboltanum, og er verulega svekktur yfir að fá ekki að fara heim, allavega yfir helgi. En hann fékk lista yfir hvað hann má EKKI gera... það inniheldur alla leiðinlega hluti, ryksuga, slá garðinn (halló það er vetur) þvo bílana (hann gaf mér það verkefni, ég á að fara í sigtún sagði hann vegna kuldans-glaða ég;) ef hann setur í þvottavél, þá verður að hann að gera það hægt og taka hvíldir á milli... held að engin láti hann gera það hvort sem er;) Ég sagði honum að arfleiða Óskar bara að húsbóndatitlinum og láta hann gera leiðinlegu hlutina... hann hefði gift sig inní familýjið... nú væri tíminn til að taka ábyrgðina... látum hann ryksuga! ....Grunar reyndar að hann sé meiri húsmóðir en systir mín, ásamt því að geta gert við bíla og mótórhjól... hef engar áhyggjur að hann myndi ekki sóma sér vel sem höfuð fjölskyldunnar:Þ

fimmtudagur, janúar 13, 2005

Fór og spjallaði við starfsmenn nýja leikskóla vigs í dag, lýst bara ótrúlega vel á þetta allt saman.Eins og þetta er búið að valda mér vissum áhyggjum þá held ég að þetta verði góð breyting, íþróttasalurinn t.d. er á stærði við heilt hús :P Og var því farið að versla tilheyrandi íþróttafatnað sem þarf víst að vera til staðar... daman fékk adidas outfitt, bleikt auðvitað... Mér tókst xcually að finna eitthvað á þúsara, adidas sjáiði til, þúsara... er ég ein um að vera svona surprised???

Annars fór pabba mín í hjartaþræðingu í dag sem gekk ágætlega, og er hjáveituaðgerð (bypass)næst á dagskránni. Get ekki sagt að ég sé annað en ein stór kvíðahrúga, reyni þó að komast hjá því að láta mömmu finna fyrir því... þó að hún óneitanlega finni það við fyrsta tón.. hvað er þetta með mömmur og there sixth sence? Ég kemst samt ekki hjá því að sjá það í augunum á mömmu hvað hún er hrædd, ég þakka bara fyrir hvað ég var ung þegar afi fór í þessa aðgerð að ég skyldi ekki almennilega hversu alvarlegt þetta var. Núna vil ég helst flytja uppá Lansa og sofa í stólnum hjá pabba... Skapið er heldur ekki að gera sig fyrir mig, og finnur vigs helst fyrir því, hún var samt mest hissa yfir öllum þessum snúrum og risaplástrinum á fætinum á pabba... en var samt greinilega að reyna hughreysta pabba með því að segja honum hvað þetta allt væri voða flott í dag, snúrurnar og bindin sem halda öllu á sínum stað. Svo klappaði hún honum reglulega og strauk og kyssti hann vel og vandlega... þau eru ekki eins útúr heiminum þessi börn eins og maður heldur stundum. Kannski er hún bara sterkust af okkur öllum á þessum tímapunkti, því hún stappaði duglega í mig kjarkinum þegar við löbbuðum út með því að kyssa á hendina á mér og segja mér að ég væri best og að hún elskaði mig.
Annars er ég að hætta að reykja, föður mínum til stuðnings, og sjálfri mér auðvitað svona til framtíðarlitið. Samt væri gott að fá sér smók núna!

Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com